Oliver Aron efstur á Meistaramóti Hellis að loknum fimm umferðum

MMHellis2013 007Oliver Aron Jóhannesson (2008) er efstur með 4,5 vinning að lokinni fimmtu umferð Meistaramóts Hellis sem fram fór í kvöld. Oliver vann Mikael Jóhann Karlsson (2068) í umferð kvöldins. Kjartan Maack (2128), sem vann Sævar Bjarnason (2116) og Sverrir Örn Björnsson (2100) sem hafði betur gegn Stefáni Bergssyni (2131), koma næstir með 4 vinninga. Sex skákmenn koma svo í humátt eftir með 3,5 vinning þannig að búast má við afar harðri baráttu í lokaumferðunum tveimur.

Lítið var um óvænt úrslit í kvöld en úrslit kvöldsins má finna hér.

Stöðu mótsins má finna hér.

Sjötta og næst síðasta umferð fer fram á morgun og hefjast kl. 19:30. Þá mætast meðal annars Oliver (4,5) - Sverrir Örn (4), Stefán (3,5) - Kjartan (4), Jón Árni (3,5) - Vigfús (3,5), Loftur (3,5) - Mikael (3,5) og Birkir Karl (3,5) - Vignir Vatnar (3). Pörun sjöttu umferðar má finna í heild sinni hér.

Paul Frigge sér um innslátt skáka og eru þær í næstu færslu fyrir neðan.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 83105

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband