Fall er fararheill, (hversu ömurlegt orðtak er það annars?)

Björn og HjörvarBjörn Þorfinnsson skrifar: Þá er fyrstu umferð í Fiskmarkaðsmóti Hellis lokið farsællega. Það er alltaf smá beigur í skipuleggjendum þegar fyrsta umferð alþjóðlegra móta er að hefjast og því er spennufallið mikið þegar umferðin er komin í gang. Ingvar Bölvaður Jóhannesson hjálpaði ekki upp á auma hjartastarfsemi undirritaðs þegar hann svaraði farsímanum sínum á slaginu kl. 17.00 og sýndi óskarsverðlaunaframmistöðu í því að þykjast vera að vakna. Ingvar á einmitt heima í nágrenni Keflavíkur og því hefði það tekið hann amk 20-25 mín. að bruna á vettvang. Eftir 1 mín. taugaáfall mitt kom hinsvegar í ljós að mörðurinn var að leggja bílnum sínum fyrir framan skákstað og því hófst mótið nokkurn veginn á réttum tíma eftir enn eina óskarsverðlaunaræðuna frá Gunnari Björnssyni, aðalskákstjóra mótsins.

Ég tefldi við hinn unga Hjörvar Stein sem hefur verið á mikilli siglingu undanfarið. Það er afar mikilvægt fyrir stigahærri skákmann að halda virðingu ungviðsins eins lengi og unnt er með því að berja á þeim eins og kostur er. Því mætti ég til leiks með það eitt að markmiði að vinna skákina sama hvað það kostaði. Í ljós kom að ég hafði engan veginn efni á bölvuðu kaupverðinu og því er virðing Hjörvars fyrir mér gjörsamlega farinn og kemur aldrei aftur (ef hún var aldrei til staðar þá er drengurinn náttúrulega steindauður :)). Skákin varð æsispennandi (sumar stöðurnar í stúderingunum voru algjörlega absúrd) og aldrei þessu vant tókst mér að komast í tímahrak sem er eitthvað sem ég er frekar óvanur að lenda í. Eftir byrjunina var ég hæstánægður með stöðuna sem kom upp og þegar mér gafst færi á mannsfórn fyrir talsverða sókn þá hikaði ég ekki við að grípa gæsina. Í framhaldinu rataði ég ekki á réttu leiðina, í stað þess að tefla sóknina rólega fór ég út í þvingað afbrigði sem gaf mér kost á þráskák en þar sem ég ætlaði nú að halda virðingunni þá íhugaði ég það ekki í eina einustu sekúndu. Upp kom fáránleg staða þar sem ég var með hrók og þrjú peð gegn tveimur riddurum Hjörvars (auk þess sem auðvitað var nóg af öðru liði á borðinu). Hinsvegar áttaði ég mig hægt og rólega á því að ég var í afar djúpum skít því riddararnir hótuðu gjörsamlega öllu illu og ég átti nánast engan tíma eftir. Ég á reyndar eftir að athuga í tölvunni hvort ég átti einhverja von í þeirri stöðu en a.m.k. fann ég enga vörn yfir borðinu og Hjörvar kláraði skákina afar smekklega. Í lokin upplifði maður þá algjörlega fáránlegu tilfinningu að vera í öngum sínum yfir því að brenna svona allar brýr að baki sér en að sama skapi stoltur af litla gríslingnum sem var að sauma að manni. Ókei, ég skal vera hreinskilinn, ég íhugaði náttúrulega að lemja hann í eitt andartak, jafnvel tvö, en svo varð ég stoltur :) Núna er það ekkert sem býður nema ísköld sturta, svo upp í rúm, þumallinn upp í munn og hnéin upp að bringu. Fósturstellingin er sennilega áhrifaríkasta meðal við skákþunglyndi sem til er en þá er líka eins gott að halda einbeitingunni "and keep sucking that thumb".

Því miður náði ég ekki að fylgjast með öðrum skákum sem skildi. Bragi vann Sævar í uppgjöri alþjóðlegu meistaranna. Mér sýndist Sævar hafa fórnað peði fyrir sóknarfæri og einhver var nú pressan fannst mér. Það verður fróðlegt að sjá þá skák en snillingurinn Eyjólfur Ármanns ætlar að henda þeim inn á netið fyrir okkur Hellismenn. Lenka sigraði Jorge Fonseca nokkuð örugglega sýndist mér og IM Walaa frá Egyptalandi vann Ingvar. Ég sá þó ekki betur en að Ingvar hefði verið með töluvert betra mest allan tímann og a.m.k. þannig að þessi skák átti aldrei að tapast. Mótið er þó hreint ekki búið og á morgun er mikilvægt að girða sig í brók og hefna! Að lokum gerðu Omar og Andrzej jafntefli eftir harða baráttu. Ég held samt að Omar hljóti að hafa staðið til vinnings á tímabili og væntanlega nagar hann sig létt í handarbökin að hafa ekki náð að landa punktinum.

Önnur umferð mótsins hefst á morgun kl. 17.00 í sal Skáksambandsins. Sjóðheitt á könnunni fyrir gesti og gangandi!

Kveðja Björn Fóstur Þorfinnsson.


Bragi, Hjörvar og Lenka unnu

Hjörvar lagði BjörnFiskmarkaðsmót Hellis hófst fyrr í kvöld.  Þegar þetta er ritað er þremur skákum lokið.   Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson sigraði, kollega sinn, Sævar Bjarnason, Hjörvar Steinn Grétarsson lagði Björn Þorfinnsson og Lenka Ptácníková sigraði Pólverjann Andrzej Misiuga.

Fylgst verður vel með mótinu hér en hér verður að finna úrslit, stöðu, skákir og myndir.  Auk þess má benda á Skák.is og Chess-Results þar sem reynt verður að uppfæra úrslitin reglulega.  


Fiskmarkaðsmót Hellis hefst í dag!

FMÍHellirSíðar í dag, miðvikudaginn 20.júní, kl. 17.00, hefst Fiskmarkaðsmót Taflfélagsins Hellis í húsakynnum Skáksambands Íslands, Faxafeni 12. Mótið er sérstaklega skemmtilegt fyrir þær sakir að áhrif alþjóðavæðingar íslensks samfélags eru afar greinileg á keppendalistanum!

Lög FIDE, alþjóðlega Skáksambandsins, kveða á um það að til þess að mót geti talist alþjóðlegt mót og þannig gefið möguleika á áföngum að alþjóðlegum titlum þá verður 1/3 keppenda að vera af erlendu bergi brotnir. Að þessu sinni vill svo skemmtilega til að þrír "útlendinganna", Pólverjinn Andrzej Misiuga, Spánverjinn Jorge Fonseca og Egyptinn Omar Salama eru allir búsettir hér á landi og er slíkt algjört einsdæmi í alþjóðlegu skákmótahaldi hérlendis. Eini aðkomumaðurinn er egypski alþjóðlegi meistarinn Sarwat Walaa en hann er jafnframt stigahæsti skákmaður mótsins.

Fyrir heimavarnarliðinu, sem reyndar hefur aldrei verið jafn erfitt að skilgreina, fara ungi alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson og hinn þaulreyndi alþjóðlegi meistari Sævar Bjarnason sem er sá Íslendingur sem hefur teflt langflestar kappskákir. Sævar hefur á sínum ferli sigrað alla íslensku stórmeistaranna en ánægjan af því að bæta í höfðuðleðrasafnið fer, að því er virðist, aðeins vaxandi. Augu margra skákáhugamanna munu beinast að hinum 14 ára gamla Hjörvari Steini Grétarssyni en hann náði nýverið frábærum árangri á alþjóðlegu skákmóti í Ungverjalandi og mun án efa freista þess að halda þeirri velgengni áfram. Aðrir keppendur eru FIDE-meistararnir Ingvar Þór Jóhannesson, Björn Þorfinnsson (bróðir Braga) og kvennastórmeistarinn Lenka Ptacknikova. Ingvar og Björn hafa báðir náð tveimur áföngum að alþjóðlegum meistaratitli og má vænta þess að þeir leggi allt í sölurnar til að klófesta þriðja og síðasta áfangann á þessu móti. Lenka er  langsterkasta skákkona landsins en hún er auk þess eiginkona Omars Salama sem einnig tekur þátt í mótinu. Það verður því boðið upp á bræðra- og hjónavíg að Faxafeni 12 næstu daga.

Fyrsta umferð hefst kl. 17.00 að Faxafeni 12 og munu eftirtaldir skákmenn mætast:

Hjörvar Steinn Grétarsson - Björn Þorfinnsson
Omar Salama - Andrzej Misiuga
Lenka Ptacknikova - Jose Fonseca
IM Bragi Þorfinnsson - IM Sævar Bjarnason
Ingvar Þór Jóhannesson - IM Sarwat Walaa

Keppendalistinn:

 

Nr. Titill    Nafn    Land    StigFélag
1AMSarwat Walaa EGY2397 
2AMBragi Þorfinnsson ISL2384Hellir
3FMBjörn Þorfinnsson ISL2348Hellir
4FMIngvar Þór JóhannessonISL2299Hellir
5KSMLenka PtácníkováISL2290Hellir
6AMSævar BjarnasonISL2262TV
7 Omar SalamaEGY2194Hellir
8 Hjörvar Steinn Grétarsson ISL2156Hellir
9 Andrzej Misiuga POL2153TR
10 Jorge Fonseca  ESP2085 


Skákmótinu verður framhaldið kl. 17.00 næstu vikuna og er aðgangur ókeypis í boði Fiskmarkaðs Íslands.

Reglulegar fréttir og pistlar verði hér á bloggsíðunni auk þess sem benda má Skák.is!


HHÍ og Suzuki bílar sigrðu á Mjóddarmótinu

Bragi var í miklum ham og vann hvern andstæðinginn að fætur öðrum og þar með talin Arnar í 3. umferð.  Það var ekki fyrr en Davíð Kjartansson lagði hann í sjöttu umferð að Arnar náði honum betur honum að vinningum og koma þeir jafnir í mark með 6 vinninga í sjö skákum.  

Arnar, sem hefur verið áfaflega sigursæll á hraðskákmótinu og þá sérstaklega Mjóddarskákmótinu náði þar með Braga að vinningum og hafði svo betur eftir stigaútreikning reyndar eins og svo oft áður!

Þetta er fjórði sigur Arnars á Mjóddarskákmótinu á fimm árum.  Það var aðeins Davíð Ólafsson, sem náði að stöðva Arnar í fyrra þegar hann sigraði á mótinu. 

Í 3.-4. sæti urðu Vinnuskóli Reykjavíkur (Davíð Kjartansson) og Fröken Júlía (Sigurður Daði Sigfússon). 

Úrslit urðu sem hér segir:

Nr.FyrirtækiSkákmaðurVinn.Stig
1Happdrætti Háskóla ÍslandsArnar E. Gunnarsson624,5 (28,5)
2Suzuki bílarBragi Halldórsson624,0 (28,0)
3Vinnuskóli ReykjavíkurDavíð Kjartansson5 
4Fröken JúlíaSigurður Daði Sigfússon5 
5Íþrótta- og tómstundaráð ReykjavíkurHjörvar Steinn Grétarsson4,5 
6Landsbanki ÍslandsGunnar Björnsson4 
7Gissur og PálmiKristján Örn Elíasson4 
8SPRONÞór Valtýsson4 
9VISA ÍslandSæbjörn Guðfinnsson4 
10SjálfstæðisflokkurinnGuðmundur Kjartansson3,5 
11StaðarskáliHallgerður Helga Þorsteinsdóttir3,5 
12ReykjavíkurborgVigfús Ó. Vigfússon3,5 
13KaupþingAndri Grétarsson3 
14SorpaHelgi Brynjarsson3 
15Kaffi ParísTinna Kristín Finnbogadóttir3 
16RST-NetElsa María Þorfinnsdóttir3 
17Hitaveita SuðurnesjaBjörgvin Kristbergsson2,5 
18BakarameistarinnPáll Andrason2,5 
19VSTBjarni Hjartarson2,5 
20GlitnirÖrn Stefánsson2 
21Nettó í MjóddFinnur Kr. Finnsson2 
22ExenaPétur Jóhannesson0,5 

Skákstjórar voru Gunnar Björnsson og Vigfús Ó. Vigfússon.  Hellir vill þakka kærlega þeim fyrir fyrirtækjum sem tóku þátt fyrir stuðninginn.  


Mjóddarmót Hellis fer fram 16. júní

Verðlaun eru sem hér segir:

1. 10.000
2.   6.000
3.   4.000

Sigurvegar Mjóddarmót Hellis og fyrirrennara þess frá upphafi:

Mmótið hét Firmakeppni Hellis og TR árið 1997, Fyrirtækjakeppni Hellis árið 1998, Kosningamót Hellis árið 1999 en hefur heitið Mjóddarmót Hellis síðan árið 2000:

1997: Veitingahúsið Ítalía (Þröstur Þórhallsson)
1998: Námsflokkar Reykjavíkur (Hannes Hlífar Stefánsson)
1999: Símvirkinn (Hannes Hlífar Stefánsson)
2000: ESSO (Þorsteinn Þorsteinsson)
2001: Fröken Júlía (Snorri G. Bergsson) og Orkuveita Reykjavíkur (Helgi Áss Grétarsson)
2002: Framfarafélagið í Mjódd (Björn Þorfinnsson)
2003: Suzuki-bíkar (Arnar E. Gunnarsson)
2004: Sorpa (Arnar E. Gunnarsson)
2005: Nettó í Mjódd (Arnar E. Gunnarsson)
2006: Dýraland - gæludýraverslun (Davíð Ólafsson)


Tómas rúllar upp hraðkvöldi.

Lokastaðan á hraðkvöldinu: 1.   Tómas Björnsson 7v/7 2.   Elsa María Þorfinnsdóttir 5v 3.   Sigurður Ingason 4,5v 4.   Sæbjörn Guðfinnsson 4,5v 5.   Vigfús Ó. Vigfússon 4v 6.   Yuri Garrett 4v 7.   Sigurður Kristjánsson 3v 8.   Örn Stefánsson...

Paul sigraði í stigakeppninni og Jóhannes með bestu mætingu á æfingum.

Níu krakkar mættu mjög vel í vetur og hlutu öll viðurkenningu fyrir góða mætingu. Það eru: Jóhannes Guðmundsson            33 mætingar Patrekur Ragnarsson                   32 ----“------ Paul Frigge                                    32...

Dagur Andri sigraði á síðustu æfingu fyrir sumarhlé.

Þeir sem tóku þátt í æfingunni voru: Dagur Andri Friðgeirsson,   Dagur Kjartansson,   Franco Soto, Kristófer Orri Guðmundsson, Emil Sigurðarson,   Jóhannes Guðmundsson, Patrekur Ragnarsson, Brynjar Steingrímsson

Hraðkvöld hjá Helli, 4. júní

Sigurvegarinn fær pizzu fyrir tvo frá Domionos auk þess sem einn heppinn útdreginn keppandinn fær sömu verðlaun.  Þátttökugjald er kr. 300 fyrir félagsmenn en kr. 500 fyrir aðra. Þátttökugjald er kr. 200 fyrir 15 ára og yngri félagsmenn en kr....

« Fyrri síða

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 83801

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Júní 2007
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband