Jólapakkamót Hugins fer fram 17. desember

20161218_155920 (1)Jólapakkaskákmót Hugins verður haldið sunnudaginn 17. desember nk. í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótið hefst kl. 13 og er ókeypis á mótið. Mótið er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 20. skipti en það var fyrst haldið fyrir jólin 1996. Síðan hefur það verið haldið nánast á hverju ári og hefur alltaf verið eitt fjölmennasta skákmót ársins.

Keppt verður í allt að 6 flokkum:

• Flokki fæddra 2002-2004

• Flokki fæddra 2005-2006

• Flokki fæddra 2007-2008

• Flokki fæddra 2009-2010

• Flokki fæddra 2011 síðar

• Peðaskák fyrir þau yngstu

 

Tefldar verða 5 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bæði drengi og stúlkur. Auk þess verður happdrætti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.


Óttar Örn vann eldri flokkinn og Guðjón Ben yngri flokkinn á Huginsæfingu

20171120_190509Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Rayan Sharifa voru efstir og jafnir í eldri flokki með 5v af sex mögulegum á æfingu sem haldin var í Mjóddinni þann 20. nóvember sl. Báðir fenguð þeir 4v af fimm út úr skákunum og leystu dæmi æfingarinnar rétt. Óttar tapaði fyrir Einari Degi Brynjarssyni í annarri umferð en vann svo Rayan í fjórðu umferð og náði honum þar með að vinningum og efst sætinu á stigum í lokin. Elfar Ingi Þorsteinsson og Garðar Már Einarsson komu næstir báðir með 4v. Eftir tvöfaldan stigaútreikning varð Elfar Ingi í þriðja sætti og Garðar fjórði.

20171120_184917Í yngri flokki voru einnig tveir efstir og jafnir með 4v af fimm en það voru Guðjón Ben Guðmundsson og Árni Benediktsson. Framvindan var svipuð og í eldri flokknum. Árni tapaði fyrrir Brynjólfi Yan Brynjólfssyni í annarri umferð og vann svo Guðjón í fjórðu umferð. Guðjón hafði hins vegar betur í stigaútreikningnum í lokin og hreppti fyrsta sætið og Árni varð annar. Brynjólfur Yan var svo þriðji með 3,5v.

Í æfingunni tóku þátt: Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Rayan Sharifa, Elfar Ingi Þorsteinsson, Garðar Már Einarsson, Einar Dagur Brynjarsson, Ívar Örn Lúðvíksson, Viktor Már Guðmundsson, Andri Hrannar Elvarsson, Guðjón Ben Guðmundsson, Árni Benediktsson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Andri Sigurbjörnsson, Kiril Alexander Igorsson, Eythan Már Einarsson, Wihbet Goitom Haile og Lemuel Haile.

Næsta æfing verður mánudaginn 27. nóvember 2017 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjaval í Mjódd og salurinn er á þriðju hæð.


Óskar Víkingur unglingameistari Hugins 2017

IMG_3187Óskar Víkingur Davíðsson sigraði á Unglingameistaramóti Hugins sem lauk í síðustu viku. Óskar Víkingur fékk 6 vinninga í sjö skákum. Fyrst komu fimm sigrar og svo jafntefli í tveimur síðustu umferðunum við Óttar Örn og Baltasar Mána. Óskar Víkingur tefldi af öryggi í mótinu og vann verðskuldaðan sigur og hefði ekki þurft á þessum tveimur jafnteflum að halda til að landa honum. Þetta er í þriðja sinn sem Óskar verður unglingameistari Hugins og hann getur enn bætt þremur í viðbót í safnið.

Eftir spennandi lokaumferð voru fimm jöfn með 5v en það voru Stefán Orri Davíðsson, Batel Goitom Haile, Benedikt Þórisson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson. Stefán Orri var hlutskarpastur á stigum og hlaut annað sætið. Það þurfti þrefaldan útreikning til að skilja milli Stefáns Orra og Batel sem hlaut þriðja sætið. Það blés ekki byrlega fyrir Stefáni Orra eftir slysalegt tap gegn Batel í annarri umferð þar sem hann manni yfir lét leppa hjá sér hrók í endatafli. Lokaumferðirnar tefldust Stefáni Orra í hag. Batel lenti í tveimur erfiðum viðureignum við þá bræður Bjart og Benedikt Þórissyni og hafði hún sigur gegn þeim yngri en tapaði fyrir þeim eldri. Benedikt stóð því vel fyrir lokaumferðina og gat tryggt sér annað sætið með því að vinna Stefán Orra í lokaumferðinni en það er erfitt að tefla tvær úrslitaskákir í röð og Stefán Orri vann viðureignina. Þar með var allt komið í eina kös á eftir Óskari í fyrsta sætinu.

IMG_3183Veitt voru sérstök verðlaun fyrir 12 ára og yngri þar sem undanskyldir voru þeir sem voru í þremur efstu sætum. Þar komu þeir þrír sem einnig voru með 5v. Benedikt var þeirra stighæstur með 29 stig, Óttar Örn var annar með 27 stig og Baltasar Máni þriðji með 26 stig. Óttar og Baltasar tefldu vel á mótinu og áttu góðan seinni hluta sem oft hefur gefist vel. Það vantar aðeins meiri nákvæmni hjá þeim og meiri byrjanakunnáttu til að stinga sér alveg á kaf í toppbaráttuna.

Þátttakendur á mótinu voru 22 sem telst bara nokkuð gott á þessu móti sem stendur yfir í tvo daga. Allir sem hófu mótið luku því sem hefur ekki gerst oft.

Frásögn þessi er lausleg endursögn á frétt sem birtist á skákhuganum rétt áður en síðan hrundi.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Tómas atskákmeistari Reykjavíkur og Kristján atskákmeistari Hugins

20171120_230801(1)Tómas Björnsson sigraði á jöfnu og spennandi Atskákmóti Reykjavíkur sem fram fór síðast liðið mánudagskvöld. Tómas tefldi vel og af öryggi á mótinu og fékk 5,5v í sex skákum og varð atskákmeistari Reykjavíkur í fyrsta sinn. Jafnteflið kom í fimmtu umferð gegn Erni Leó Jóhannssyni. Örn Leó var þá búinn að gera jafntefli við Hilmir Freyr Heimisson og þurfti á sigri að hald til að hafa sætaskipti við Tómas sem ekki tókst. Bæði Tómas og Örn Leó unnu í lokaumferðinni og varð Örn Leó því í öðru sæti með 5v. Þriðja sætinu náði svo Kristján Halldórsson með góðum endaspretti sem skilaði honum 4,5v í hús. Kristján var jafnframt efstur Huginsmanna og atskákmeistari Hugins 2017. Þátttakendur voru 22 sem telst all góð þátttaka í þessu móti.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 83120

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Nóv. 2017
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband