Skákir sjöttu umferðar

Misiuga-Sarwat

Skákir sjöttu umferðar Fiskmarkaðsmótsins eru nú aðgengilegar!  Minni á sjöundu umferð sem hefst kl. 17 á morgun.

Mynd: Misiuga og Sarwat tefldu miklu maraþonskák í sjöttu umferð sem varð alls 117 leikir!


Bragi með vinnings forskot eftir jafntefli gegn Hjörvari

Hjörvar-BragiAlþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson hélt jafntefli gegn Hjörvari Steini Grétarssyni í sjöttu umferð Fiskmarkaðsmótsins, sem fram fór í dag.   Bragi leiðir og hefur 5 vinninga.  Í 2.-3. sæti eru Björn bróðir hans, sem sigraði Spánverjann Fonseca í hörkuskák, þar sem Spánverjinn fórnaði manni, og egypski alþjóðlegi meistarinn Walaa Sarwat sem gerði jafntefli við Pólverjann Misiuga í 120 leikja skák!

Misiuga virtist lengi vel ætla að hafa Egyptann og var lengi peði yfir.  Hann virðist svo hafa leikið af sér manni í biskupaendatafli en var seigur og hélt jafntefli. 

Ingvar Þór Jóhannesson tefldi "flóðhestinn" gegn Lenku en staðan sprakk út á réttum tíma og Ingvar vann góðan sigur.

Omar og Sævar gerðu stutt jafntefli.

Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 17.  Þá mætast m.a. Bragi-Omar, Ingvar-Björn og Sarwat-Hjörvar.  Björn hefur ennþá von um áfanga að alþjóðlegum meistaratitli en til þess þarf hann að vinna allar skákirnar sem eftir eru.

Hjörvar hefur staðið sig best stigalega það sem af er mótið, en hefur 24 stig í plús, Misiuga kemur næstur með 17 stig og Bragi þriðji með 9 stig.

Úrslit, stöðu og stigaútreikninga má finna til vinstri, undir tenglar.   


Hjörvar - Heiðrún 2,5-0,5

Heiðrún og HjörvarHeiðrúnardrengirnir riðu ekki feitum hesti frá viðureignum sínum gegn Hjörvari Stein Grétarssyni en aðeins Braga Þorfinnssyni tókst að halda jöfnu.

Ljóst er að aðrir Heiðrúnardrengir eins og t.d. Stefán Kristjánsson og Jón Viktor Gunnarsson hrósa nú happi yfir því að hafa ekki tekið þátt í mótinu.

 


Ljúffengar veitingar á Fiskmarkaðsmóti!

HjördísarkökurEnginn hefur þurft að þola sult hér á Fiskmarkaðsmótinu en Hjördís móðir hans Hjörvars bauð upp tvær afar lystugar kökur hér í dag!

Reyndar sást einn keppandi, sem tók kannski fullt mikið á því í  kökuátinu hlaupa hratt inn um ákveðna hurð.  Niðurstaða  er að ég held ennþá: Ísland 1 - Svíþjóð (Gustavsberg) 0! 

Af skákunum er lítið af frétta.  Omar og Sævar gerðu stutt jafntefli  en aðrar skákir eru í fullum gangi, fórnir og læti hjá kaffihúsaskákmanninum, Bjössa.  Auk þess sem Misiuga virðist hafa vænlega stöðu gegn Sarwat og að þessu sinni setur hann menn andstæðingsins, eftir að hafa drepið þá, sín megin!

Enn er beðið eftir Húnsvöfflum dagsins, en að mati 67% svaranda könnunar, á mamma Bjössa heiðurinn af deiginu.   

 


Húnsvöfflur og Hjördísarkaka í boði á eftir!

Bjössi og vöfflurnarGunnar Björnsson skrifar:  Það er óneitanlega mikil tilhlökkun fyrir sjöttu umferðina sem hefst á eftir en Björn hefur boðað aukinn skammt af Húnsvöfflunum en nú er í gangi könnun, hér á vinstri hluta síðunnar, um það hvor bakaði deigið, Björn eða mamma hans.  Svo hefur Hjördís boðað nýja kaloríubombu en sú fyrri fékk afar góðar móttökur......................já og svo verður líka teflt og spurning hvort Bragi nái að redda heiðri Heiðrúnarmanna gegn Hjörvari sem hefur safnað tveimur tveimur Heiðrúnarguttum í höfuðleðrasafnið hingað til á mótinu!

Umferðin hefst kl. 14!    


Skákir fimmtu umferðar

Skákir fimmtu umferðar eru nú aðgengilegar!  Sjötta umferð hefst kl. 14 á morgun og þar mætast m.a. Lenka og Ingvar og Bragi og Hjörvar.  Mun Hjörvar halda áfram að slátrun á Heiðrúnarpiltum?    Mynd: Hjörvar "Rooney" og Ingvar Þór að stúdera skákina sem...

Bragi með eins vinnings forskot!

Gunnar Björnsson skrifar:   Bragi Þorfinnsson hélt áfram sigurgöngu sinni á Fiskmarkaðsmótinu og að þessu sinni var fórnarlambið Pólverjinn Andrezj Misiuga.  Bragi hefur nú 4,5 vinning og er vinningi fyrir ofan næstu menn.  Aðeins Björn bróðir hefur náð...

Djúsí Húnsvöfflur - Bragi með sterkan leik!

Gunnar Björnsson skrifar:  Björn Þorfinnsson lætur menn yfirleitt ekki eiga neitt inni hjá sér.  Í upphafi umferðar í dag mætti Húnninn hinn glaðbeittasti vopnaður vöffludegi........ reyndar var það mamma hans sem setti í deigið.  Í upphafi umferðar...

Skákir fjórðu umferðar

Skákir fjórðu umferðar eru komnar í hús, Eyjólfur snöggur að vanda.  Fimmta umferð hófst kl. 17.    Mynd: Pólverjinn Misiuga hefur komið á óvart með góðri frammistöðu en hann lagði Sævar Bjarnason í fjórðu umferð.  

Lenka og Bragi efst!

Gunnar Björnsson skrifar:  Lenka Ptácníková og Bragi Þorfinnsson er efst á Fiskmarkaðsmóti Hellis með 3,5 vinning að lokinni fjórðu umferð, sem var að klárast.  Lenka gerði örjafntefli við eiginmann sinn, Omar Salama, en Bragi sigraði Spánverjann...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Júní 2007
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband