24.8.2009 | 12:16
Barna- og unglingaæfingar veturinn 2009-2010
Barna- og unglingaæfingar Hellis hefjast aftur mánudaginn 24. ágúst 2009. Taflið byrjar kl. 17:15 og fyrirkomulagið verður það sama og síðasta vetur. Æfingarnar eru opnar öllum 15 ára og yngri. Engin þátttökugjöld.
Æfingarnar verða haldnar í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangurinn snýr að Kópavogi og er þar sem Sparisjóður Reykjavíkur var áður en salur félagsins er á þriðju hæð hússins. Á æfingunum verða 5 eða 6 umferðir með umhugsunartíma 10 eða 7 mínútur. Einnig verður farið í dæmi og endatöfl eins og tími vinnst til. Umsjón með æfingunum hefur Vigfús Ó. Vigfússon.
Á döfinni er svo að halda alþjóðlegt barna- og unglingamót á þessum vetri svipað og félagið hefur haldið tvisvar áður.
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.8.2009 | 12:14
Atkvöld hjá Helli í kvöld 24. ágúst.
Taflfélagið Hellir heldur atkvöld mánudaginn 24. ágúst 2009 og hefst mótið kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til að ljúka skákinni og síðan þrjár atskákir, með tuttugu mínútna umhugsun.
Sigurvegarinn fær í verðlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Þá hefur einnig verið tekinn upp sá siður að draga út af handahófi annan keppanda, sem einnig fær pizzu hjá Dominos Pizzum. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Skák | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 24. ágúst 2009
Barna- og unglingastarf
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Skák.is Chess News
- Skáksamband Íslands The Chess Federation of Iceland
- Skákakademía Reykjavíkur Skákakademía Reykjavíkur
- Skákhornið Icelandic Chess Discussion Board
- Skákvörur Skádæmi, þrautir og verkefni
- Skákfélag fjölskyldunnar Skákfélag fjölskyldunnar
- Krakkaskák Kennsluvefur fyrir krakka
Mót 2012
- Meistaramót Hellis 2012 Meistaramót Hellis 2012
- Íslandsmót unglingasveita 2012 Íslandsmót unglingasveita 2012
Eldri mót
- Hraðskákmót Hellis 2011 Hraðskákmót Hellis 2011
- Meistaramót Hellis 2011 Meistaramót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2011 Stigamót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2010 Stigamót Hellis 2010
- Hraðskákmót Hellis 2010 Hraðskákmót Hellis 2010
- Meistaramót Hellis 2010 Meistaramót Hellis 2010
- Unglingameistaramót Hellis 2009 Unglingameistaramót Hellis 2009
- Mjóddarmót Hellis 2009 Mjóddarmót Hellis 2009
- Meistaramót Hellis 2008 Meistaramót Hellis 2008
- Hellir Youth 2008 Hellir Youth 2008
- Hellir Youth Tournament III 2008 Hellir Youth Tournament III 2008
- Fiskimót 2008 Fiskimót 2008
- Stigamót Hellis 2008 Stigamót Hellis 2008
- Helgarskákmót Hellis og TR 2008 Helgarskákmót Hellis og TR 2008
- Meistaramót Hellis 2007 Meistaramót Hellis 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar