Hraðkvöld hjá Helli mánudaginn 24. janúar.

Taflfélagið Hellir heldur hraðkvöld mánudaginn 24. janúar  nk. og hefst taflið kl. 20:00. Tefldar verða 7 umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma.  Teflt er í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á hraðkvöldinu fær í verðlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi, sem einnig fær pizzu hjá Dominos Pizzum. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).



Vignir efstur á æfingu

Vignir Vatnar Stefánsson sigraði með fullu húsi á Hellisæfingu sem haldin 17. janúar sl og vann alla 5 andstæðinga sína. Í öðru sæti varð var Dawid Kolka með 4v. Nansý Davíðsdóttir krækti sér svo í þriðja sætið með 3v eins og Gauti Páll, Mikael, Brynjar og Ardit en Nansý var hærri á stigum.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 24. janúar og hefst eins og ávalt kl. 17.15.

Þau sem tóku þátt í æfingunni voru: Vignir Vatnar Stefánsson, Dawid Kolka, Nansý Davíðsdóttir, Gauti Páll Jónsson, Mikael Kravchuk, Brynjar Steingrímsson, Ardit Bakiqi, Felix Steinþórsson, Donika Kolica, Hilmir Hrafnsson, Heimir Páll Ragnarsson, Elías Lúðvíksson, Viktor Ísar Stefánsson, Ástþór Árni, Aron Pétur Árnason og Brynjar Darri.


Bloggfærslur 19. janúar 2011

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 62
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband