Vignir Vatnar efstur á Hellisæfingu - Baldur Teodor og Hilmir Freyr unnu tvö síðustu sætin á Reykjavík Barnablitz

Hellisæfingin í gær mánudaginn 18. febrúar var engin venjuleg æfing. Auk þess að vera hefðbundin barna- og unglingaæfing var um að ræða forkeppni fyrir Reykjavik Barnabiltz sem gaf tvö síðustu sætin í þá keppni. Það sást líka á keppendalistanum en sennilega var um að ræða eina sterkustu æfingu sem haldin hefur verið lengi í Hellisheimilinu. Tefldar voru sex umferðir með sjö mínútna umhugsunartíma. Að loknum þessum sex umferðum stóð Vignir Vatnar Stefánsson uppi sem sigurvegari með  fullu húsi eða 6 vinninga í jafn mörgum skákum. Annar varð Baldur Teodor Petersson með 5v. Baldur Teodor er systursonur hins ötula skákstjóra og formanns TG Páls Sigurðssonar og býr í Svíþjóð en er kominn gagngert til landsins til að tefla á Reykjavíkurskákmótinu, ásamt vini sínum Milton Pantzar sem einnig tók þátt í æfingunni. Næstir komu svo Dawid Kolka og Hilmir Freyr Heimisson með 4,5v en Dawid fékk þriðja sætið eftir stigaútreikning.

Vignir Vatnar og Dawid höfðu áður tryggt sér sæti á Reykjavík Barnablitz þannig að tvö síðustu sætin komu í hlut Baldurs Teodors Petersson og Hilmis Freys Heimissonar. Það er því ljóst hverjir munu taka þátt í úrslitum á Reykjavik Barnabliz en það eru: Dawid Kolka, Felix Steinþórsson og Hilmir Freyr Heimisson úr Taflfélaginu Helli, Baldur Teodor Petersson úr TG, Björn Hólm Birkisson og Vignir Vatnar Stefánsson úr TR og Nansý Davíðsdóttir og Þorsteinn Magnússon úr Fjölni. Úrslitin í Reykjavík Barnablitz verða í Hörpunni laugardaginn 23. febrúar.

Í æfingunni tóku þátt: Vignir Vatnar Stefánsson, Baldur Teodor Petersson, Dawid Kolka, Hilmir Freyr Heimisson, Felix Steinþórsson, Bárður Örn Birkisson, Milton Pantzar, Egill Úlfarsson, Stefán Orri Davíðsson, Bjarki Arnaldarson, Brynjar Bjarkason, Heimir Páll Ragnarsson, Björn Hólm Birkisson, Mikhael Kravchuk, Óskar Víkingur Davíðsson, Alec Elías Sigurðarson, Hilmir Hrafnsson, Sigurður Kjartansson, Sigurður Bjarki Blumenstein, Halldór Atli Kristjánsson, Stefán Karl Stefánsson, Oddur Unnsteinsson, Pétur Ari Pétursson, Þorsteinn Emil Jónsson, Birgir Ívarsson, Ólafur Steinn Ketilbjörnsson, Adam Omarsson, Sindri Snær Kristófersson, Guðmundur Agnar Bragason og Torfi Þór Róbertsson.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 25. febrúar nk. og hefst kl. 17.15. Það breytir engu þótt margir sem hafa tekið þátt í og séð um æfingarnar séu fjarverandi meðan á Reykjavíkurskákmótinu stendur. Það kemur bara maður í manns stað. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband