26.11.2017 | 00:25
Óskar Víkingur unglingameistari Hugins 2017
Óskar Víkingur Davíðsson sigraði á Unglingameistaramóti Hugins sem lauk í síðustu viku. Óskar Víkingur fékk 6 vinninga í sjö skákum. Fyrst komu fimm sigrar og svo jafntefli í tveimur síðustu umferðunum við Óttar Örn og Baltasar Mána. Óskar Víkingur tefldi af öryggi í mótinu og vann verðskuldaðan sigur og hefði ekki þurft á þessum tveimur jafnteflum að halda til að landa honum. Þetta er í þriðja sinn sem Óskar verður unglingameistari Hugins og hann getur enn bætt þremur í viðbót í safnið.
Eftir spennandi lokaumferð voru fimm jöfn með 5v en það voru Stefán Orri Davíðsson, Batel Goitom Haile, Benedikt Þórisson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson. Stefán Orri var hlutskarpastur á stigum og hlaut annað sætið. Það þurfti þrefaldan útreikning til að skilja milli Stefáns Orra og Batel sem hlaut þriðja sætið. Það blés ekki byrlega fyrir Stefáni Orra eftir slysalegt tap gegn Batel í annarri umferð þar sem hann manni yfir lét leppa hjá sér hrók í endatafli. Lokaumferðirnar tefldust Stefáni Orra í hag. Batel lenti í tveimur erfiðum viðureignum við þá bræður Bjart og Benedikt Þórissyni og hafði hún sigur gegn þeim yngri en tapaði fyrir þeim eldri. Benedikt stóð því vel fyrir lokaumferðina og gat tryggt sér annað sætið með því að vinna Stefán Orra í lokaumferðinni en það er erfitt að tefla tvær úrslitaskákir í röð og Stefán Orri vann viðureignina. Þar með var allt komið í eina kös á eftir Óskari í fyrsta sætinu.
Veitt voru sérstök verðlaun fyrir 12 ára og yngri þar sem undanskyldir voru þeir sem voru í þremur efstu sætum. Þar komu þeir þrír sem einnig voru með 5v. Benedikt var þeirra stighæstur með 29 stig, Óttar Örn var annar með 27 stig og Baltasar Máni þriðji með 26 stig. Óttar og Baltasar tefldu vel á mótinu og áttu góðan seinni hluta sem oft hefur gefist vel. Það vantar aðeins meiri nákvæmni hjá þeim og meiri byrjanakunnáttu til að stinga sér alveg á kaf í toppbaráttuna.
Þátttakendur á mótinu voru 22 sem telst bara nokkuð gott á þessu móti sem stendur yfir í tvo daga. Allir sem hófu mótið luku því sem hefur ekki gerst oft.
Frásögn þessi er lausleg endursögn á frétt sem birtist á skákhuganum rétt áður en síðan hrundi.
Meginflokkur: Skák | Aukaflokkur: Unglingastarfsemi | Breytt 1.12.2017 kl. 22:48 | Facebook
Barna- og unglingastarf
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Skák.is Chess News
- Skáksamband Íslands The Chess Federation of Iceland
- Skákakademía Reykjavíkur Skákakademía Reykjavíkur
- Skákhornið Icelandic Chess Discussion Board
- Skákvörur Skádæmi, þrautir og verkefni
- Skákfélag fjölskyldunnar Skákfélag fjölskyldunnar
- Krakkaskák Kennsluvefur fyrir krakka
Mót 2012
- Meistaramót Hellis 2012 Meistaramót Hellis 2012
- Íslandsmót unglingasveita 2012 Íslandsmót unglingasveita 2012
Eldri mót
- Hraðskákmót Hellis 2011 Hraðskákmót Hellis 2011
- Meistaramót Hellis 2011 Meistaramót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2011 Stigamót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2010 Stigamót Hellis 2010
- Hraðskákmót Hellis 2010 Hraðskákmót Hellis 2010
- Meistaramót Hellis 2010 Meistaramót Hellis 2010
- Unglingameistaramót Hellis 2009 Unglingameistaramót Hellis 2009
- Mjóddarmót Hellis 2009 Mjóddarmót Hellis 2009
- Meistaramót Hellis 2008 Meistaramót Hellis 2008
- Hellir Youth 2008 Hellir Youth 2008
- Hellir Youth Tournament III 2008 Hellir Youth Tournament III 2008
- Fiskimót 2008 Fiskimót 2008
- Stigamót Hellis 2008 Stigamót Hellis 2008
- Helgarskákmót Hellis og TR 2008 Helgarskákmót Hellis og TR 2008
- Meistaramót Hellis 2007 Meistaramót Hellis 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.