20.6.2007 | 14:15
Fiskmarkaðsmót Hellis hefst í dag!


Lög FIDE, alþjóðlega Skáksambandsins, kveða á um það að til þess að mót geti talist alþjóðlegt mót og þannig gefið möguleika á áföngum að alþjóðlegum titlum þá verður 1/3 keppenda að vera af erlendu bergi brotnir. Að þessu sinni vill svo skemmtilega til að þrír "útlendinganna", Pólverjinn Andrzej Misiuga, Spánverjinn Jorge Fonseca og Egyptinn Omar Salama eru allir búsettir hér á landi og er slíkt algjört einsdæmi í alþjóðlegu skákmótahaldi hérlendis. Eini aðkomumaðurinn er egypski alþjóðlegi meistarinn Sarwat Walaa en hann er jafnframt stigahæsti skákmaður mótsins.
Fyrir heimavarnarliðinu, sem reyndar hefur aldrei verið jafn erfitt að skilgreina, fara ungi alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson og hinn þaulreyndi alþjóðlegi meistari Sævar Bjarnason sem er sá Íslendingur sem hefur teflt langflestar kappskákir. Sævar hefur á sínum ferli sigrað alla íslensku stórmeistaranna en ánægjan af því að bæta í höfðuðleðrasafnið fer, að því er virðist, aðeins vaxandi. Augu margra skákáhugamanna munu beinast að hinum 14 ára gamla Hjörvari Steini Grétarssyni en hann náði nýverið frábærum árangri á alþjóðlegu skákmóti í Ungverjalandi og mun án efa freista þess að halda þeirri velgengni áfram. Aðrir keppendur eru FIDE-meistararnir Ingvar Þór Jóhannesson, Björn Þorfinnsson (bróðir Braga) og kvennastórmeistarinn Lenka Ptacknikova. Ingvar og Björn hafa báðir náð tveimur áföngum að alþjóðlegum meistaratitli og má vænta þess að þeir leggi allt í sölurnar til að klófesta þriðja og síðasta áfangann á þessu móti. Lenka er langsterkasta skákkona landsins en hún er auk þess eiginkona Omars Salama sem einnig tekur þátt í mótinu. Það verður því boðið upp á bræðra- og hjónavíg að Faxafeni 12 næstu daga.
Fyrsta umferð hefst kl. 17.00 að Faxafeni 12 og munu eftirtaldir skákmenn mætast:
Hjörvar Steinn Grétarsson - Björn Þorfinnsson
Omar Salama - Andrzej Misiuga
Lenka Ptacknikova - Jose Fonseca
IM Bragi Þorfinnsson - IM Sævar Bjarnason
Ingvar Þór Jóhannesson - IM Sarwat Walaa
Keppendalistinn:
Nr. | Titill | Nafn | Land | Stig | Félag |
1 | AM | Sarwat Walaa | EGY | 2397 | |
2 | AM | Bragi Þorfinnsson | ISL | 2384 | Hellir |
3 | FM | Björn Þorfinnsson | ISL | 2348 | Hellir |
4 | FM | Ingvar Þór Jóhannesson | ISL | 2299 | Hellir |
5 | KSM | Lenka Ptácníková | ISL | 2290 | Hellir |
6 | AM | Sævar Bjarnason | ISL | 2262 | TV |
7 | Omar Salama | EGY | 2194 | Hellir | |
8 | Hjörvar Steinn Grétarsson | ISL | 2156 | Hellir | |
9 | Andrzej Misiuga | POL | 2153 | TR | |
10 | Jorge Fonseca | ESP | 2085 |
Skákmótinu verður framhaldið kl. 17.00 næstu vikuna og er aðgangur ókeypis í boði Fiskmarkaðs Íslands.
Reglulegar fréttir og pistlar verði hér á bloggsíðunni auk þess sem benda má Skák.is!
Meginflokkur: Spil og leikir | Aukaflokkur: Skák | Breytt s.d. kl. 14:24 | Facebook
Barna- og unglingastarf
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Skák.is Chess News
- Skáksamband Íslands The Chess Federation of Iceland
- Skákakademía Reykjavíkur Skákakademía Reykjavíkur
- Skákhornið Icelandic Chess Discussion Board
- Skákvörur Skádæmi, þrautir og verkefni
- Skákfélag fjölskyldunnar Skákfélag fjölskyldunnar
- Krakkaskák Kennsluvefur fyrir krakka
Mót 2012
- Meistaramót Hellis 2012 Meistaramót Hellis 2012
- Íslandsmót unglingasveita 2012 Íslandsmót unglingasveita 2012
Eldri mót
- Hraðskákmót Hellis 2011 Hraðskákmót Hellis 2011
- Meistaramót Hellis 2011 Meistaramót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2011 Stigamót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2010 Stigamót Hellis 2010
- Hraðskákmót Hellis 2010 Hraðskákmót Hellis 2010
- Meistaramót Hellis 2010 Meistaramót Hellis 2010
- Unglingameistaramót Hellis 2009 Unglingameistaramót Hellis 2009
- Mjóddarmót Hellis 2009 Mjóddarmót Hellis 2009
- Meistaramót Hellis 2008 Meistaramót Hellis 2008
- Hellir Youth 2008 Hellir Youth 2008
- Hellir Youth Tournament III 2008 Hellir Youth Tournament III 2008
- Fiskimót 2008 Fiskimót 2008
- Stigamót Hellis 2008 Stigamót Hellis 2008
- Helgarskákmót Hellis og TR 2008 Helgarskákmót Hellis og TR 2008
- Meistaramót Hellis 2007 Meistaramót Hellis 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.