Dregið í 1. og 2. umferð Hraðskákkeppni taflfélaga


Röðun 1. umferðar (11 liða úrslita):

Skákdeild Hauka - Taflfélag Akraness
Taflfélag Vestmannaeyja - Skákfélag Reykjanesbæjar
Taflfélag Bolungarvíkur - Taflfélag Garðabæjar

1. umferð á vera lokið 20. apríl nk.  Fyrirfram verður að teljast líklegast að fyrstudeildarlið Hauka, TV og TG komist áfram í 2. umferð.

Röðun 2. umferðar (8 liða úrslita):

Taflfélagið Hellir - Skákfélag Akureyrar
Bolungarvík/TG - Haukar/TA
TV/SR - Taflfélag Reykjavíkur
Taflfélag Kópavogs - Skákdeild KR

2. umferð á að vera lokið 30. apríl nk.  Aðalviðureign umferðarinnar verður að teljast viðureign Hellis og SA.   TK og KR mætast í keppinni eins og venjulega!

Rétt er að minna á reglur keppninnar:

Reglur keppninnar:


Reglur keppninar má finna hér:

1. Sex manns eru í hvoru liði og tefld er tvöföld umferð, þ.e. allir í öðru liðinu tefla við alla í hinu liðinu. Samtals 12 umferðir, eða 72 skákir.

2. Heimalið sér um dómgæslu. Komi til deiluatriða er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.

3. Varamenn mega koma alls staðar inn. Þó skal gæta þess að menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstæðingi og hafi ekki sama lit í báðum skákunum.

4. Ætlast er til þess að þeir sem tefli séu fullgildir meðlimir síns félags. Aðeins má tefla með einu taflfélagi í keppninni.

5. Liðsstjórar koma sér saman um hvenær er teflt og innan tímaáætlunar.

6. Verði jafnt. Verður tefldur bráðabani. Það er tefld er einföld umferð þar sem dregið er um liti á fyrsta borði og svo hvítt og svart til skiptist. Verði enn jafnt verður áfram telft áfram með skiptum litum þar til úrslit fást.

7. Heimalið bjóði upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eða kex.

8. Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auðið er í netfangið gunnibj@simnet.is

9. Úrslit keppninnar verða ávallt aðgengileg á heimasíðu Hellis, www.hellir.is, sem er heimasíða keppninnar, og á www.skak.is

10. Mótshaldið er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvæmd hennar


Áætlun keppninnar er sem hér segir (getur auðvitað breyst):


1. umferð : Verði lokið 20. apríl
2. umferð: Verði lokið 30. apríl
Undanúrslit: Verði lokið 10. maí
Úrslit: Verði lokið 15. maí


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Hver er summan af sex og tólf?
Nota HTML-ham

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.9.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 83856

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband