Skák og jól í Álfhólsskóla

25487568_10155932818829719_8703472418909412982_oJólapakkaskákmóti Hugins var haldið í 20 sinn í Álfhólsskóla þann 17. desember sl. Mótið var nú sem endranær eitt fjölmennasta krakkamót ársins. Þetta er annað árið í röð sem mótið fer fram í Álfhólsskóla og þátttakan var betri en árið áður en 133 tóku þátt að þessu sinni og má því segja að mótið hafi unnið sér sess á nýjum stað. Vissulega var það töluverð breyting að færa mótið úr Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem það hafði verið í meira en áratug og nánast orðið rótfast en það hefur einnig ákveðinn sjarma að halda mótið á nýjum stað eins og Álfhólsskóla. Uppsetning mótsins er einnig mjög auðveld í Álfhólsskóla þar sem er rúmgóður matsalur sem tekur rúmlega 100 manns að tafli.

Við flutninginn í Álfhólsskóla var gerð sú breyting á mótshaldinu að hætt var að mestu að nota Monradspjöldin og flestir flokkar keyrðir á tölvu. Núna ætluðum við að sleppa monradspjöldunum alveg en forritið virkaði ekki í einni tölvunni og þurfti því að nota spjöldin í tveimur yngstu flokkunum. Það er ekki mikil eftirsjá af monradspjöldunum nema í happdrættinu þar sem það er tilþrifameira að veiða spjöldin úr kassa heldur en að láta tölvuna draga.

Búið var að forskrá alla keppendur í mótið en smá tilfæringar þurfti við að bæta nýjum keppendum inn og fella út þá sem ekki mætttu og jafnvel bæta sumum inn aftur þegar þeir birtust móðir og másandi þannig að mótið byrjaði eins og alltaf rúmleg kl. 13 og fjörið hófst.

Teflt var í sex flokkum og voru keppendur allt frá 5 ára aldri og upp í 15 ára aldur. Margir sterkir skákmenn hófu sinn skákferil á Jólapakkamótinu og fyrstu mótunum má finna sigurvegara eins og Braga Þorfinnsson, Dag Arngrímsson, Davíð Kjartansson og Guðmund Kjartansson. Nú sem endranær tóku flest allir sterkustu skákmenn landsins af yngri kynslóðinni þátt.

Þátttakendur komu úr 32 skólum og leikskólum sem eru töluvert fleiri skólar en í fyrra. Langflestir komu úr Álfhólsskóla eða 23 enda á heimavelli en yfirburðirnir voru samt mun minni en í fyrra. Næstir komu svo Rimaskóli með 14 þátttakendur, Háteigsskóli með 13 þátttakendur og Salaskóli með 11 þáttakendur.

Úrslitin eru ekki aðalatriðinu á Jólapakkamótinu heldur að taka þátt og gleðja sig og aðra. Allir keppendur mótsins voru leystir út með nammi frá Góu-Lindu.Allir verðlaunahafar fengu jólapakka sem og heppnir keppendur.

Í pökkunum voru meðal annars: bækur af ýmsu tagi og þar á meðal skákbækur, húfur, dót af ýmsu tagi, púsluspil, töfl, leikir og fleira. Meðal vinninga voru ýmsir vinningar frá Landsbankanum og Bluetooth heyrnartól frá Tölvulistanum/Heimilistæki. Aðrir sem gáfu gjafir í pakka voru Ferill verkfræðistofa og Bókabeitan bókaútgáfa.

Eftirtaldir studdu við mótið og er þeim færðar miklar þakkir fyrir: ALARK arkitektar, Arion banki, Álfhólsskóli, Body Shop, Dominos, Efling, Energia, Gámaþjónustan, Guðmundur Arason smíðajárn, Gullkistan, HBTB, Hjá Dóra matstofa, Íslandsspil, Íslenska lögfræðistofan, ÍTR, Kópavogsskóli, Lindaskóli, Mótx, Olís, Reykjavíkurborg, Salaskóli, Smáraskóli, Snælandsskóli, Suzuki bílar, Valitor og Vatnsendaskóli.

Mót eins og Jólapakkamótið fer ekki fram án öflugra starfsmanna. Eftirtaldir starfsmenn komu að mótinu: Edda Sveinsdóttir, Elín Edda Jóhannsdóttir, Einar Birgir Steinþórsson, Anna Guðný Björnsdóttir, Davíð Ólafsson, Gunnar Björnsson, Vigfús Ó. Vigfússon, Jón Olaf Fivelstad, Alec Elías Sigurðarson, Hildur Berglind Jóhannsdóttir, Erla Hlín Hjálmarsdóttir, Rósa Margrét Hjálmarsdóttir, Óskar Víkingur Davíðsson, Stefán Orri Davíðsson, Lenka Ptacnikova, Adam Omarsson og Josef Omarsson. Auk þess aðstoðuðu fjöldi foreldra og keppenda við tiltekt að móti loknu sem gekk það vel að um kl. 17 voru öll áhöld komin niður í félagsheimili Hugins í Mjóddinni sem er vel að verki staðið.Fá allir þessi aðilar bestu þakkir fyrir.

En þá eru það úrslitin.

A-flokkur (2002-04):

Gestur Andri Brodmann vann flokkinn með 4,5v af 5 mögulegum. Í öðru og þriðja sæti voru Snorri Esekíel Jóhannesson og Konráð Óskar Kjartansson með 3,5v. Gestur, Snorri, Konráð og Vigfús Máni Ólafsson voru efstir strákanna.

Rakel Tinna Gunnarsdóttir varð efst stúlkna. Elín Edda Jóhannsdóttir varð önnur, Ásgerður Júlía Gunnarsdóttir þriðja og Wiktoria Momuntjuk fjórða.

11 tóku þátt. Nánar á Chess-Results.

B-flokkur (2005-06):

Óskar Víkingur Davíðsson sigraði með 4,5 af 5 mögulegum, Joshua Davíðsson og Ótttar Örn Bergmann Sigfússon Orri Karlsson urðu í 2 og 3. sæti með 4v. Í næstu sætum voru Benedikt Þórisson (4v) og Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson (3,5v).

Ylfa Ýr Welding Hákonardótir varð efst stúlkna, Ásthildur Helgadóttir önnur, Þórdís Agla Jóhannsdóttir þriðja og Hólmfríður Þrastardóttir fjórða.

26 tóku þátt. Nánar á Chess-Results.

C-flokkur: (2007-08):

Gunnar Erik Guðmundsson varð efstur með fullt hús 5v af fimm mögulegum. Í öðru til þriðja sæti voru Rayan Sharifa og Anna Katarína Thoroddsen með 4v. Efstir af strákunum voru Gunnar Erik Guðmundsson, Rayan Sharifa, Einar Tryggvi Petersen (4v) og Adam Omarsson (4v).

Anna Katarína Thoroddsen var efsta stúlkna. Soffía Arndís Berndsen önnur, Katrín María Jónsdóttir þriðja og Sóley Kría Helgadóttir fjórða.

26 tóku þátt. Nánar á Chess-Results:

D-flokkur (2009-10):

Eiríkur Emil Hákonarson og Einar Dagur Brynjarsson urðu efstir og jafnir með 5v af fimm mögulegum. Jóhann Helgi Hreinsson, Markús Flosi Blöndal og Bjartur Þórisson með 4v urðu næstir stráka.

Sól Lilja Sigurðardóttir var efst stúkna með 4v, næstar komu Elín Lára Jónsdóttir, Svandís María Gunnarsdóttir, Arna Rún Gunnarsdóttir og Heiðdís Diljá Hjartardótttir.

49 tóku þátt. Nánar á Chess-Results:

E-flokkur (2011 og yngri):

Jósef Omarsson sigraði með full húsi 5v í jafn mörgum skákum. Annar var Dagur Jóhann Friðjónsson með 4. Næstir komu Róbert, Tómas Pétursson og Jökull Máni Ingvarsson með 3,5v. Hafdís Karen Óskarsdótir og Hafdís Karen Óskarsdóttir voru efstar stúlkna.

19 tóku þátt. Sjá nánar á skakhuginn.is

Peðaskák (2011 og yngri):

Aðeins þrjú voru með í peðaskákinni að þessu sinni. Sunneva Valey Valdimarsdóttir var efst, og næstir komu jafnir Nói Hrafn Sólar Arngrímsson og Ignat Leó. Alls tóku 3 þátt.

Happdrættin:

Í hverjum flokki voru dregnir út heppnir keppendur og var reynt að hafa fjölda vinninga í samræmi við fjölda keppenda í hverjum flokki miðað við skráninguna þegar pakkarnir voru útbúnir. Í lokin var svo happdrætti þar sem allir eiga möguleika og þar varu m.a. annars dregin út Bluetooth heyrartól frá Tölvulistanum/Heimilstækjum fyrir bæði stelpu og strák og þar duttu í lukkupottin Agla Björk Egilsdóttir og Kiril Alexander Igorsson

Skákfélagið Huginn þakkar öllum krökkunum kærlega fyrir þátttökuna!


Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 83129

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Jan. 2018
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband