Vignir Vatnar efstur í eldri flokki og Stefán Karl í yngri flokki

Á æfingunni sem haldin var 28. janúar sl. var skipt í eldri og yngri flokk og svo fóru þeir sem höfðu skákstig allir í eldri flokkinn. Vignir Vatnar Stefánsson sigraði með 5v af fimm mögulegum í eldri flokki. Annar varð Dawid Kolka með 4 vinninga og þriðji Heimir Páll Ragnarsson með 3v og hærri stig en Bárður Örn Birkisson, Felix Steinþórsson, Björn Hólm Birkisson og Brynjar Bjarkason sem einnig fengu 3v. Í yngri flokki voru fjórir jafnir með 4v af fimm og þurfti því að grípa til stigaútreiknings. Þá fékk Stefán Karl Stefánsson fyrsta sætið, Þorsteinn Emil Jónsson annað sætið, Tinni Teitsson það þriðja og Sindri Snær Kristófersson varð fjórði.

Í æfingunni tóku þátt: Vignir Vatnar Stefánsson, Dawid Kolka, Heimir Páll Ragnarsson, Bárður Örn Birkisson, Felix Steinþórsson, Björn Hólm Birkisson og Brynjar Bjarkason, Sigurður Kjartansson, Mikhael Kravchuk, Birgir Ívarsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Oddur Unnsteinsson, Helgi Svanberg Jónsson, Burkni  Björnsson, Heimir Páll Ragnarsson, Stefán Karl Stefánsson,  Þorsteinn Emil Jónsson, Tinni Teitsson, Sindri Snær Kristófersson, Þórður Hólm Hálfdánarson, Stefán Orri Davíðsson, Arnar Jónsson,  Ívar Andri Hannesson, Ólafur Steinn Ketilbjörnsson og Adam Omarsson.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 4. febrúar nk. og hefst kl. 17.15. Þá verður teflt í tveimur flokkum eftir aldri og hvor þátttakendur hafi skákstig. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 83172

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband