Barna- og unglingaæfingar Hellis hefjast aftur eftir sumarfrí þann 2. september 2013

IMG 1640Barna- og unglingaæfingar Hellis hefjast aftur eftir sumarfrí mánudaginn 2. september 2013. Taflið byrjar kl. 17:15 og fyrirkomulagið verður það sama og síðasta vetur.  Æfingarnar eru opnar öllum 15 ára og yngri en skipt verður í tvo flokka eftir aldri og styrkleika á sumum æfingum. Engin þátttökugjöld.

Æfingarnar verða haldnar í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangur er við hliðina á Subway en salur félagsins er á þriðju hæð hússins. Á æfingunum verða 5 eða 6 umferðir með umhugsunartíma 10 eða 7 mínútur. Einnig verður farið í dæmi og endatöfl eins og tíma vinnst til. Þegar starfsemin verður komin vel af stað verður unnið í litlum verkefnahópum á einni æfingu í mánuði og þannig stuðlað að því að efla einingu og samstöðu innan hópsins.  Þær æfingar verða eingöngu fyrir félagsmenn og verða kynntar síðar. Umsjón með æfingunum hefur Vigfús Ó. Vigfússon.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 83137

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband