7.12.2017 | 23:13
Batel vann eldri flokkinn og Árni yngri flokkinn á Huginsæfingu
Batel Goitom Haile sigraði örugglega í eldri flokki með fullu húsi 5v í jafn mörgum skákum á æfingu sem haldin var í Mjóddinni þann 4. desember sl. Annar var Rayan Sharifa með 4v. Síðan komu fjórir með 3v en það voru Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Ívar Örn Lúðvíksson, Einar Dagur Brynjarsson og Garðar Már Einarsson. Eftir stigaútreikning hlaut Óttar þriðja sætið, Ívar fjórða sætið, Einar Dagur fimmta sætið og Garðar það sjötta. Ekkert dæmi var lagt fyrir á þessari æfingu en þemaskák var í þremur umferðum í eldri flokki og tveimur í yngri flokki. Haldið var áfram með c3 afbrigðið í sikileyjarvörn þar sem svartur svarar með d5. Við erum komin í sjöunda kafla og farið að síga á seinni hlutann í þessu afbrigði.
Yngri flokkurinn vannst einnig með fullu húsi 5v í jafn mörgum skákum og það gerði Árni Benediktsson. Annar varð Sigurður Sveinn Guðjónsson með 4v. Tvö komu næst með 3v en það voru Kristófer Lúðvíksson og Wiktoria Momuntjuk. Kristófer var hlutskarpari á stigum og hlaut þriðja sætið en Wiktoria var fjórða.
Í æfingunni tóku þátt: Batel Goitom Haile, Rayan Sharifa, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Ívar Örn Lúðvíksson, Einar Dagur Brynjarsson, Garðar Már Einarsson, Frank Gerritsen, Viktor Már Guðmundsson, Andri Hrannar Elvarsson, Elfar Ingi Þorsteinsson, Jón Kristinn Stefánsson, Árni Benediktsson, Sigurður Sveinn Guðjónsson, Kristófer Stefánsson, Wiktoria Momuntjuk, Guðjón Ben Guðmundsson, Alfreð Dossing, Bergþóra Helga Gunnarsdóttir, Sigurður Rúnar Gunnarsson, Andri Sigurbjörnsson, Stefán Páll Jenssen og Witbet Goitom Haile.
Næsta æfing verður mánudaginn 11. desember 2017 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjaval í Mjódd og salurinn er á þriðju hæð.
Meginflokkur: Skák | Aukaflokkur: Unglingastarfsemi | Facebook
Barna- og unglingastarf
Tenglar
Ýmsir tenglar
- Skák.is Chess News
- Skáksamband Íslands The Chess Federation of Iceland
- Skákakademía Reykjavíkur Skákakademía Reykjavíkur
- Skákhornið Icelandic Chess Discussion Board
- Skákvörur Skádæmi, þrautir og verkefni
- Skákfélag fjölskyldunnar Skákfélag fjölskyldunnar
- Krakkaskák Kennsluvefur fyrir krakka
Mót 2012
- Meistaramót Hellis 2012 Meistaramót Hellis 2012
- Íslandsmót unglingasveita 2012 Íslandsmót unglingasveita 2012
Eldri mót
- Hraðskákmót Hellis 2011 Hraðskákmót Hellis 2011
- Meistaramót Hellis 2011 Meistaramót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2011 Stigamót Hellis 2011
- Stigamót Hellis 2010 Stigamót Hellis 2010
- Hraðskákmót Hellis 2010 Hraðskákmót Hellis 2010
- Meistaramót Hellis 2010 Meistaramót Hellis 2010
- Unglingameistaramót Hellis 2009 Unglingameistaramót Hellis 2009
- Mjóddarmót Hellis 2009 Mjóddarmót Hellis 2009
- Meistaramót Hellis 2008 Meistaramót Hellis 2008
- Hellir Youth 2008 Hellir Youth 2008
- Hellir Youth Tournament III 2008 Hellir Youth Tournament III 2008
- Fiskimót 2008 Fiskimót 2008
- Stigamót Hellis 2008 Stigamót Hellis 2008
- Helgarskákmót Hellis og TR 2008 Helgarskákmót Hellis og TR 2008
- Meistaramót Hellis 2007 Meistaramót Hellis 2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.