Hraðskákkeppni taflfélaga að hefjast

Hraðskákkeppni taflfélaga, sem mun vera eina útsláttarkeppni taflfélaga í ár, mun hefjast eftir verslunarmannahelgi.  Þetta er í fjórtánda sinn sem keppnin fer fram en Taflfélag Reykjavíkur er núverandi meistari en Hellismenn hafa sigrað oftast eða sex sinnum.  

Áætlunin er sem hér segir:

1. umferð (u.þ.b. 12 liða úrslit): Skuli vera lokið um 20. ágúst
2. umferð (8 liða úrslit): Skuli vera lokið 31. ágúst
3. umferð (undanúrslit): Skuli vera lokið 10. september.
4. umferð (úrslit): Skal fara fram laugardaginn 20. september kl. 14.

Skráning til þátttöku rennur út 7. ágúst nk.    Forráðamenn taflfélaga eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við mig í netfangið gunnibj@simnet.is eða í síma 820 6533.

Reglur keppninnar:

1. Sex manns eru í hvoru liði og tefld er tvöföld umferð, þ.e. allir í öðru liðinu tefla við alla í hinu liðinu. Samtals 12 umferðir, eða 72 skákir.
2. Heimalið sér um dómgæslu. Komi til deiluatriða er Ólafur S. Ásgrímsson yfirdómari keppninnar.
3. Varamenn mega koma alls staðar inn. Þó skal gæta þess að menn tefli ekki oftar en tvívegis gegn sama andstæðingi og hafi ekki sama lit í báðum skákunum.
4. Ætlast er til þess að þeir sem tefli séu fullgildir meðlimir síns félags. Aðeins má tefla með einu taflfélagi í keppninni.
5. Liðsstjórar koma sér saman um hvenær er teflt og innan tímaáætlunar.  Komi liðsstjórar sér ekki saman um dagsetningu innan tímaramma getur umsjónaraðili ákvarðað tímasetningu. 
6. Verði jafnt verður tefldur bráðabani. Það er tefld er einföld umferð þar sem dregið er um liti á fyrsta borði og svo hvítt og svart til skiptist. Verði enn jafnt verður áfram teflt áfram með skiptum litum þar til úrslit fást.
7. Heimalið bjóði upp á léttar veitingar, t.d. kaffi, gos, kökur eða kex.
8. Viðureignirnar skulu fara innan 100 km. radíus frá Reykjavík nema að félög komi sér saman um annað. 
9. Úrslitum skal koma til umsjónarmann eins fljótt og auðið er í netfangið gunnibj@simnet.is og eigi síðar en 12 klukkustundum eftir að keppni lýkur.
10. Úrslit keppninnar verða ávallt aðgengileg á heimasíðu Hellis, www.hellir.blog.is, sem er heimasíða keppninnar, og á www.skak.is
11. Mótshaldið er í höndum Taflfélagsins Hellis sem sér um framkvæmd mótsins.  

Sigurvegarar frá upphafi:

  • 1995: Taflfélag Reykjavíkur
  • 1996: Taflfélagið Hellir
  • 1997: Taflfélag Reykjavíkur
  • 1998: Taflfélagið Hellir
  • 1999: Skákfélag Hafnarfjarðar
  • 2000: Taflfélagið Hellir
  • 2001: Taflfélagið Hellir
  • 2002: Taflfélagið Hellir
  • 2003: Skákfélagið Hrókurinn
  • 2004: Taflfélag Reykjavíkur
  • 2005: Taflfélagið Hellir
  • 2006: Taflfélag Reykjavíkur
  • 2007: Taflfélag Reykjavíkur
  • 2008: ????????

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 83166

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband