Dawid og Sindri Snær efstir á Hellisæfingu

Á æfingu sem haldin var 4. mars sl. var fyrst unnið að verkefnum í litlum hópum og tókst það ágætlega til þótt lítill tími hafi verið til undirbúnings vegna Reykjavíkurskákmótsins og Íslandsmóts skákfélaga. Eftir að þátttakendur höfðu gætt sér á pizzum um miðja æfinguna var skipt um gír og tekið til við að tefla. Þar sem æfingin var hálfnuð þurfti að láta 4 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma nægja. Teflt var í tveimur flokkum og sigraði Dawid Kolka í eldri flokki með 3,5v. Annar varð Felix Steinþórsson með 3v og þriðji varð Heimir Páll Ragnarsson með 2v og hærri stig en Alec Sigurðarson, Óskar Víkingur Davíðsson og Sigurður Kjartansson sem einnig fengu 2v. Í yngri flokki voru Sindri Snær Kristófersson og Stefán Karl Stefánsson efstir með 3v og voru þeir einnig jafnir á öllum stigum en Sindri Snær vann innbyrðis viðureign þeirra og þar með flokkinn en Stefán Karl varð í öðru sæti. Þriðji varð svo Ívar Andri Hannesson með 2,5v og hærri stig en Tinni Teitsson og Birgir Logi Steinþórsson sem einnig fengu 2,5v

Í æfingunni tóku þátt: Dawid Kolka, Felix Steinþórsson, Heimir Páll Ragnarsson, Alec Sigurðarson, Óskar Víkingur Davíðsson, Sigurður Kjartansson, Birgir Ívarsson, Oddur Þór Unnsteinsson, Sindri Snær Kristófersson, Stefán Karl Stefánsson, Ívar Andri Hannesson, Tinni Teitsson, Birgir Logi Steinþórsson, Egill Úlfarsson, Halldór Atli Kristjánsson, Stefán Orri Davíðsson, Adam Omarsson og Jóhannes Guðmundsson.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 11. mars nk. og hefst kl. 17.15. Þá verður einnig skipt í tvo hópa eftir aldri og styrkleika. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Félagið

Taflfélagið Hellir
Taflfélagið Hellir

Burtséð frá öllum titlum - einfaldlega besta og flottasta félagið

Barna- og unglingastarf

Nýjustu myndir

  • 20180226 190425
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o
  • 25487568 10155932818829719 8703472418909412982 o

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Framundan

Íslandsmótið í netskák 2013

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband